6.12.2007 | 08:43
Hversu mörg störf skapar netþjónabú?
Getur einhver upplýst mig? Þessa dagana er verið að stilla upp netþjónabúum sem valkosti í iðnaðarflóru landsins. Lykitölur um orkuþörf hafa verið nefndar. En hversu mörg afleidd störf eru af netþjónabúi? Þessu hefur enginn fjölmiðill svarað. Netþjónabú poppar upp í mínum huga sem stór salur af stórum tölvum sem geyma gögn, ég sé fyrir mér 5-10 rafvirkja, 2-3 ræstitækna og húsvörð og forstöðumann þjóna einu netþjónabúi sem starfsmenn, eftir að um 500 Pólverjar hafa byggt það upp undir leiðsög íslensks verkstjóra. Leiðréttið mig ef rangt er.
Er þá ekki mikilvægt að ef finna skal orkufrekan og umhverfisvænni iðnað annan en álver, skuli valin iðnaður sem veitir sem flest afleidd störf? Er ekki mikilvægast að iðnaður sem nýtir takmarkaða orku landsins skapi sem allra flest störf?
Var að velta þessu fyrir mér.
Tenglar
Utan Austurlands
Austfirskur
Austfirskt
- Framleiða ál í Reyðarfirði
- Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar spila í 1. deild
- Höttur Handbolti Höttur spilar í 1. deild
- Höttur Knattspyrna Höttur spilar í 2. deild
- Austurlandið.is Það sem Austfirskt er í fréttum.
Bloggvinir
- Bjarni Harðarson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Blog-andinn Eyvar
- perla voff voff
- Birkir Jón Jónsson
- Guðmundur Bergkvist
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Kristborg Bóel Steindórsdóttir
- Rúnar Birgir Gíslason
- Vefritid
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 9584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Einhverntíman var talað um matvælaframleiðislu - það yrðu keyptir togarar og byggð stór frystihús sem víðast og þá myndu skapast afleidd störf. Verkstæði, verslanir, matsölustaðir, hárgreiðslustofur, hús yrðu byggð og hvað það nú var sem átti að verða til með þessu.
Veit ekki hvort þessu var nokkurntíman hrint í framkvæmd.
Björgvin Valur (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.