19.11.2007 | 14:00
Nonni og Manni farnir að kenna þýsku
Nú er maður víst búinn að ganga frá kaupum á flugmiða til Munchen. Það var eindreginn ósk betri helmingsins að við eyddum jólafríi okkar í bæjaralandi enda betri helmingurinn alþýsk. Hún er nú orðinn ískyggilega góð í íslensku og jafnvel farin að leiðrétta mig í tíma og ótíma, og farin að kunna forna íslenska málshætti.
Heldur þykir henni þó lítið fara fyrir þýskukunnáttu minni, þó ég hafi skorað ágætlega í þýsku á framhaldsskólaárunum. Hún hefur tekið til þess ráðs að flytja inn Nonna og Manna myndirnar með þýsku tali - og segir það nauðsynlegt fyrir mig að horfa á þessar myndir til að læra þýskt tungumál betur. Nú erum við komin á þátt fjögur af sex, og verð ég að viðurkenna að ég er síst betri í þýsku. Þótt mér sé farið að skiljast að Magnús Hanson drap Sigurð og að hann er vondur kall.
Hún hefur tilkynnt mér það, af þýskum aga, að næsta kennslustund verði næsta laugardag og að þá munum við horfa á þætti fimm og sex. Ég veit nú ekki hvort hún mun halda stöðupróf í framhaldinu, en mig grunar að ég myndi falla á þess konar prófi.
Ég og æskuvinur minn horfðum á íslensku útgáfuna af þáttunum í "gamla daga" og hermdum við eina setningu sérstaklega úr þáttunum. Hana mælti fyllibyttan Sverrir á afar nefmæltan og skondin hátt. En hún hljóðaði svo "Maagnúúús Haaanson draap Siggurð."
Meira af þýskum málefnum síðar.
Tenglar
Utan Austurlands
Austfirskur
Austfirskt
- Framleiða ál í Reyðarfirði
- Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar spila í 1. deild
- Höttur Handbolti Höttur spilar í 1. deild
- Höttur Knattspyrna Höttur spilar í 2. deild
- Austurlandið.is Það sem Austfirskt er í fréttum.
Bloggvinir
- Bjarni Harðarson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Blog-andinn Eyvar
- perla voff voff
- Birkir Jón Jónsson
- Guðmundur Bergkvist
- Guðmundur M Ásgeirsson
- Kristborg Bóel Steindórsdóttir
- Rúnar Birgir Gíslason
- Vefritid
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hae hae einar ben og betri helmingurinn þinn. Gaman að sjá hana orðin iskyggilega goð
góð i islensku. Vórum alltaf bjartsýn um framtiðina hennar á Fróni...
kveðjur frá baejaralandi
Máni og Kengála (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 22:33
Hi.
bist du der Werner? Wir freuen uns euch an weinachten zu sehen.
Einar Ben Þorsteinsson, 19.11.2007 kl. 22:59
Ja genau Einar, wir sind´s Werner und Dagmar. Freuen uns auch. Herzlich willkommen be
bei uns auf dem Land.
Máni og Kengála(Werner und Dagmar) (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.