Vikuleg gagnrýni á Spaugstofuna

Leiðin í átt að húmor, er vandrötuð leið - að minnsta kosti hjá Spaugstofunni.

Sketchar Spaugstofunnar eru því miður æ lélegri. Góður sketch er uppbyggður þannig að hann kemur áhorfandum á óvart, hann er ekki fyrirsjáanlegur og ekki langdreginn. Pönslænið á að koma á óvart, og best er ef að áhorfendur gætu brosað út í annað. Þetta er Spaugstofunni ekki að takast.

Eftirhermur Spaugstofunnar eru líka lélegar. Góð eftirherma hefur stúderað frummyndina og getur líkt eftir henni þannig að allir viti hvern er verið að leika. Hver er tildæmis að fatta túlkun Karls Ágústs Úlfssonar á Helga Seljan? Það er átakanlegt að horfa á hálfsextugan kall leika 29 ára gamlan mann - sorglegt.

Frumleiki Spaugstofunnar er nánast engin. Frumleiki er ein grunnþörf lista, hann er ekki til staðar hjá okkar mönnum. Hvernig þætti okkur ef Bubbi væri alltaf að semja Stál og hnífur aftur? Fengjum við ekki nóg af kauða?

Ég vill fá Hrafn Gunnlaugsson aftur í staðinn fyrir Þórhall, hann hefði þó þorað að reka fleiri en Randver.

Fussum svei, meira um málið næsta laugardag.


Brjóstahristingur

Færðin er misgóð um kjördæmið mitt (nú tala ég eins og aðstoðarmaður alþingismanns) í gær lá leið mín um Fagradal eins og flesta aðra virka daga. Á veginum var talsverður krapi og gekk líka á með þvottabrettum úr klaka. Mér varð um og ó, þegar ég keyrði yfir eins kílómeters langt þvottabretti og varð þess skyndilega var að brjóstin á mér hristust í takt við bifreiðina sem skoppaði um á þvottabrettinu. Ég bókstaflega fann fyrir þeim hristast. Þetta var viss upphrópun í mínu lífshlaupi, í fyrsta sinn tek ég eftir því að brjóstin á mér er ekki hreinir vöðvar lengur og hefur vaxið spik.

Mér varð hugsað um megrun, og skelfingin ein greip mig. Svo varð mér hugsað til frábærs atriðis úr Næturvaktinni þar sem Ólafur Ragnar var farinn að "laktosa", og þá hló ég einn með sjálfum mér.

Svo fór ég að spá í hvort brjóstahristingur af þessu tagi venjist vel. Það hlýtur að koma í ljós!


Muggurinn

Var þess heiðurs aðnjótandi að sjá Mugginn standa sig ansi hreint frábærlega á smátónleikum í Menntaskólanum á Egilsstöðum í kvöld. Innlifun og útgeislun. Takk!

muggcloseup

 


Veggur dagsins, eða morgundagsins

Á morgun er víst formleg opnun á Fljótsdalstöð. Þar verður mikið húllumhæ skilst mér. Ég veit ekki hvernig hún verður formlega opnuð, en líkast til ýtir forsætisráðherra á einhvern takka - eða klippir fánalitaðan borða. Það verður spennandi að vita.

Þetta er jafnframt einhver stærsti dagur í sögu Egilsstaðaflugvallar, 3 leiguflugvélar fara víst austur á vegum Landsvirkjunar auk 6 véla í hefðbundnu áætlanaflugi. Svo er jú Bechtel verktaki að senda úr landi yfir 350 Pólverja á morgun.

Annars heyrði ég skemmtilega slúðursögu um að einn veggur í Fljótsdalsstöð hafi verið málaður grænn fyrir nokkrum árum. Hann var samkvæmt sögunni endurmálaður í sama lit á dögunum svo allt væri spikk og span á opnunardaginn. Hafði þá einn gárungurinn á orði að aðeins vantaði að mála rós vinstri grænna á vegginn, fóru menn þá að spekúlera í veggnum. Eftir miklar vangaveltur var ákveðið að gestir gætu mistúlkað upplifun sína á græna veggnum, og ákveðið var eftir miklar bollalengingar að hafa hann bláann. - Ef satt er, þá er þetta skondið. Spurning hvað Goddur segir um þetta.

Annars er fagnaður hjá Svæðisútvarpi Rúv á morgun, það verður gaman að koma þangað eftir að hafa myndað Geir H. ýta á einhvern takka.


Þýðendur, ekki íþróttafréttamenn

Að vera íþróttafréttamaður á íslenskum dagblöðum og netsíðum, virðist vera létt verk og löðurmannlegt. Grunnþekking á ensku virðist þó vera skilyrði, því aðalhlutverk íslenskra íþróttafréttamanna virðist vera að þýða fréttir sem birtast á ensku yfir á íslensku.

Í flestum tilvikum er engra heimilda getið, heldur er þýtt beint upp úr erlendum fjölmiðlum.

Hér mætti halda að Eiríkur Stefán Ásgeirsson hefði hringt í Sven Göran sjálfur http://visir.is/article/20071128/IDROTTIR0102/71128082/-1/IDROTTIR

Hér mætti halda að Eiríkur Stefán Ásgeirsson hefði hringt í Frank Rijkaard sjálfur http://visir.is/article/20071128/IDROTTIR0103/71128078/-1/IDROTTIR

Hér mætti halda að Eiríkur Stefán Ásgeirsson hefði hringt í McLeish sjálfur http://visir.is/article/20071128/IDROTTIR0102/71128048/-1/IDROTTIR

Hér hefur mogginn líka hringt í Sven Göran, spurning hver eigi skúbbið? http://mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1305836

Hér hefur mogginn hringt í ensku lögregluna. Góð sambönd sem þeir hafa þar! http://mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1305788

Hér hefur mogginn hringt í Coulthart. Ótrúlegt hvað þeir hafa góð tengsl! http://mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1305331

Fótbolti.net virðast hafa mjög góð sambönd líka. Hér hringja þeir til Englands. http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=55300

Það er spurning um að einhver taki að sér að skrifa íslenskar íþróttafréttir á ensku, þannig að mbl, vísir og fleiri geti þýtt yfir á íslensku. Þannig væri ef til vill fjallað um íþróttir á Íslandi. Bara að pæla.

Niðurstaða mín er sú að margir íslenskir íþróttafréttamenn séu í raun þýðendur, en ekki fréttamenn.

 


Þak á olíuskattinn

Ég fæ verk fyrir brjóstið í hvert sinn sem ég þarf að fylla bílinn af eldsneyti.

Það eru einn aðili sem græðir alla jafna mest á hækkun olíu, og það er íslenska ríkið. Það virðast fáir benda á það, en það er staðreynd. Fyrir hverja krónu sem bensínlítrinn hækkar í innkaupum, þá hækka tekjur ríkisins af hverjum lítra um ca. 1,4 krónur. Þetta er ekki sanngjarnt fyrir almúgann.

Hvernig væri að setja þak á skattheimtu ríkisins, eins og tildæmis að skattheimta megi aldrei fara yfir 60 krónur á líter til samans. Ég bara spyr....


Ólafur og Georg tákngervingar ríkisstjórnarsamstarfs

Bók Guðna Ágústssonar hefur fengið margan manninn til að hugsa aðeins tilbaka og spá í þær krísur sem Framsóknarflokkurinn lenti í á seinasta kjörtímabíli og hvað olli því að Árni Magnússon, Jón Kristjánsson, Dagný Jónsdóttir, Halldór Ásgrímsson og Kiddi yfirgáfu flokkinn.

Á gáfumannatali í morgun varð til skemmtileg líking á samstarfi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Voru gáfumennin sammála um að samstarf þessara flokka líktist einna helst sambandi tveggja persóna úr Næturvaktinni. Sjálfstæðisflokkurinn í hlutverki Georgs Bjarnfreðarsonar og Framsóknarflokkurinn í hlutverki Ólafs Ragnars, umboðsmanns Sólarinnar.

Þetta er að mörgu leyti ágætis samlíking. Georg kúgar Ólaf, þátt eftir þátt, og Ólafur lætur kúga sig - og telur að með lítilvægum mótmælum annað slagið sé hann að standa í hárinu á Georgi. Var þetta ekki svona með Framsóknarflokkinn?


Austfirska "pressan"

Austfirska "pressan" er ekki stór né áberandi, og þaðan af síður með stórt hlutverk sem fjórða valdið. Þó kemur fyrir að austfirskir fréttasnápar detta niður á viðkvæm og erfið mál í heimabyggð. Krafa samfélagsins virðist oft vera sú að þegja beri um þessi mál, og virðist sjónarmið margra vera - að oft megi satt kjurt liggja. 

Sjónarmiðið um jákvæða vinkilinn hef ég heyrt ansi oft. Það sjónarmið felur í sér að einungis eigi að fjalla um jákvæð mál. Fyrirtækjum sem gengur vel og einstaklingum sem eru fyrirmyndir samfélagsins.

Samkvæmt þessu ætti austfirskur fréttamiðill ekki að fjalla um málefni eins og gjaldþrotamál austfirskra fyrirtækja, illa heppnuðum viðskiptum sveitarfélaga við einstaklinga og mörg fleiri mál.

Samkvæmt jákvæða vinklinum ætti að horfa á austfirsk málefni, stofnanir og persónur gagnrýnislausum augum og einbeita sér að umfjöllun um listir, menningu, skólastarfi og hollu mataræði. Þetta eru allt mál sem eru gerð góð skil öllu jöfnu og því þarf ekki sérstaklega að huga að slíkri umfjöllun - þar sem hún er til staðar.

Það væru mistök að horfa gagnrýnislaust á austfirskt samfélag, og þegja sem gröfin um mál sem eru á allra vörum og margra vitorði. Það er engum hollt - þögnin fer verst með hjónabönd, þetta hlýtur að eiga við samfélagið líka.

Austfirska "pressan" á ekki að taka þátt í þöglu hjónabandi.


Geimverur og fífl

Hvernig það verður hlutverk ríkis og bæja að framleiða orku í fjarlægum löndum, er mér algjörlega óskiljanlegt og fyrir mér langt frá því að vera augljóst.

Iðnaðarráðherra vor talar nú um milljarðatap vegna vannýttra tækifæra REI. Þennan málatilbúnað skil ég einfaldlega ekki. Á sama tíma og stórfelldustu einkavæðingar Íslandssögunnar hafa gengið í gegn á síðustu árum til að draga úr umsvifum ríkisins - þá vill iðnaðarráðherrann fara í ný-kommúnískar aðgerðir í asíu og afríku. Þannig eiga ríki og bæjir að blása út í nafni frjálsra viðskipta í fjarlægum löndum. Þessi hugmyndafræði er algjörlega óskiljanleg með öllu.

Þessa einlæga trú Össurs á orkuútrásina er farin að jafnast á við trú Magnúsar bróðir hans á geimverur. Er þetta ekki orðið soldið FÍFLA-legt? Svona í ljósi þess að Össur er farin að kalla Júlíus Vífil, fífil.


Verið velkomin á vínkynningu í Neskirkju

http://visir.is/article/20071123/LIFID01/71123027 frétt á visir.is um vínkynningu í Neskirkju.

Þetta er eitthvað áhugaverðasta "plöggið" í langan tíma. Kannski rónar fari að mæta í safnaðarstarfið í Neskirkju í framhaldinu. Það vantaði bara að tekið væri fram hvaða vínframleiðandi styrkti Neskirkjusöfnuð.

Spurning hvort Vilhjálmur Þ. heyri af þessu og fari fram á að veittur verði volgur bjór.


Fasteignasali í skattrannsókn

Ég fékk bréf frá Efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra í dag. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær bréf frá þeirri stofnun, og vonandi í fyrsta og eins skipti. Með bréfinu fylgdi ljósrit af kaupsamningi vegna eignarinnar Eyjabakki 12 árið 2001. Fasteignasalinn sem sá um söluna var xxx. Nú var mér tilkynnt að hann væri til rannsóknar og viðskipti hans á þessum árum og því væri ég beðin að afhenta kvittun vegna sölulauna sem runnu til hans.

Þegar ég fór að skoða gamlar möppur, komst ég að því að ég get bara verið þó nokkuð skipulagður og fann nótuna sem hljóðaði upp á um 230þúsund fyrir utan VSK. Hana gat ég svo skannað með ágætis skanner frá Hewlett Packard og sent til Efnahagsbrotadeildar með tölvupósti. Þetta var auðveldara en ég hélt og tók 3 mínútur. Það er vel sloppið - þegar ég opnaði bréfið þá hugsaði ég með mér að ég yrði heila eilífð að finna út úr þessu, ef mér tækist þá yfirhöfuð að hjálpa til við rannsókn málsins.


Ég er góður kúnni

Það eru mis merkilegir hlutir sem á daga manns drífa. Í morgun fór ég tildæmis í klippingu. Það er létt verk og löðurmannlegt að klippa mig. Há kollvikin flýta fyrir. Það tekur yfirleitt 6-8 mínútur að skerða hár mitt. Þess vegna gefur auga leið að ég er góður kúnni, tek lítinn tíma, þegi mikið og brosi alltaf þegar mér er sýndur rakaður hnakkinn í baksýnisspeglinum þegar klippingu er lokið. Einnig fer mjög lítið gel í stutt hárið, þannig að það sparar pening. Ég vill alltaf láta gela mig þegar ég er klipptur.

Fyrir þetta borga ég krónur 3.200 krónur. Miðað við átta mínútna vinnu - hlýt ég að vera æskilegur kúnni á hvaða rakarastofu sem er.

Bara að pæla.

 Annars rifjast upp fyrir mér skemmtileg lítil saga um það þegar ég skellti mér í klippingu á hárgreiðslustofu á Akranesi fyrir nokkrum árum. Þá var ljóshærð fallega vaxin ung kona að klippa mig. Hún angaði af ferskri ávaxtalykt og fékk mig til að brosa. Þegar hún er langt komin með að klippa mig tekur hún eftir stóru öri á enninu á mér og spyr:

"Hvað kom eiginlega fyrir þig?"

og ég svara.

"Ég lenti í alvarlegu bílslysi þegar ég var 21 árs. Ég missti allar minningar mínar fyrir slysið og man ekkert eftir æsku minni, uppeldinu eða vinum. Líf mitt byrjaði í raun ekki fyrr en eftir slysið því ég man ekkert."

Þessu svaraði ég og þetta átti að vera fyndið. Allar fjórar samstarfskonur hennar dauðþögnuðu og hún líka. Vandræðaleg þögn var næstu fimm mínúturnar, eða þar til ég hafði yfirgefið staðinn. Þetta var svo vandræðalegt að ég þorði ekki að segja:

"Hey ég var að djóka."

Næst þegar hún sér mig hugsar hún sennilega; Þetta er gaurinn sem man ekki neitt úr æsku.


Ekki gott

Okei. Ég vona þá að Eiður Smári verði með í næsta leik! 3-0 fyrir dani í Parken dapur leikur. Ætli við verðum ekki að fara að spila fleiri æfingaleiki við Færeyinga.

Ekki taka hann af lífi strax

Já vonandi er ég ekki að fara að horfa á 14-2 tap í Parken. Að vísu munum við tapa en hversu stórt veit ég ekki. Það er mín spá. Kannski 4-1.

Það verður athyglisvert að vita hvernig mun ganga í leiknum án Eiðs Smára Guðjohnsen, en gengi landsliðsins var gott án hans gegn bæði Spánverjum og Norður-Írum fyrir stuttu síðan. Þáttaka hans í leikjum við Letta og Liechtenstein var hins vegar gagnslaus. Það er því rétt hjá mætum manni að staða hans í landsliðinu getur vakið spurningar ef Íslendingum gengur vel í leiknum á eftir.

Ég vona hins vegar að nýji þjálfarinn fái sex mánaða "pressufrið" frá fjölmiðlum. Það er hefð fyrir því annars staðar í Evrópu. Ítalski þjálfarinn var til að mynda ekki gagnrýndur fyrir slakt gengi í sínum fyrsta leik gegn Íslendingum á sínum tíma. Því má ekki taka Ólaf af lífi strax í fjölmiðlum, þess verður að gæta. Þetta skrifa ég vegna þess að strax í fyrsta leik var Eyjólfur Sverrisson gagnrýndur harkalega í beinni útsendingu á SÝN, en þar voru að verki Arnar Björnsson og Ólafur Kristjánsson. Eyjólfur sætti því strax gagnrýni, og það er ósanngjarnt - þó á seinni tímum hafi gagnrýnin verið réttmæt.

Meira eftir leik.


Kommi í auðvaldsveislu

oggi_joMér finnst allavega soldið fyndið að Ögmundur sjálfur hafi verið í brúðkaupi Jóns Ásgeirs og Ingibjargar. Það er eitthvað svo þverstæðukennt að þessi "kommi" Íslands skuli vera á gestalista auðvaldsins - og þiggja boðið. Örugglega ekkert athugavert við hann skuli hafa verið þarna, en samt skondið og þversagnakennt.

Ísland er vissulega ekki svo stórt - líklega sker.

By the way, þá er þessi mynd stolin af visir.is


Skrattinn málaður á vegginn

Það eru ekki traustvekjandi yfirlýsingar sem félagsmálaráðherra vor gefur frá sér um húsnæðismarkaðinn. Upphrópanir af þessu tagi geta varla verið góðar fyrir nokkurn aðila. Ég myndi skilja þessar yfirlýsingar ef manneskjan væri í stjórnarandstöðu.

Svo segir: "Jóhanna sagði, að framsóknarmenn hefðu séð um húsnæðiskerfið undanfarin 12 ár og skilið það eftir í algeru þroti."

Váá. Þetta eru yfirlýsingar! Á maður að trúa þessu?


Erfitt að meta klamidíu

Ég hef verið að velta fyrir mér talsvert í morgun hvað er fréttaefni og hvað er ekki fréttaefni. Ég er ekki ennþá búinn að ákveða hvort mér finnst hrikalegur klamidíufaraldur í Menntaskólanum á Egilsstöðum vera fréttaefni eða ekki.

Nonni og Manni farnir að kenna þýsku

Nú er maður víst búinn að ganga frá kaupum á flugmiða til Munchen. Það var eindreginn ósk betri helmingsins að við eyddum jólafríi okkar í bæjaralandi enda betri helmingurinn alþýsk. Hún er nú orðinn ískyggilega góð í íslensku og jafnvel farin að leiðrétta mig í tíma og ótíma, og farin að kunna forna íslenska málshætti.

Heldur þykir henni þó lítið fara fyrir þýskukunnáttu minni, þó ég hafi skorað ágætlega í þýsku á framhaldsskólaárunum. Hún hefur tekið til þess ráðs að flytja inn Nonna og Manna myndirnar með þýsku tali - og segir það nauðsynlegt fyrir mig að horfa á þessar myndir til að læra þýskt tungumál betur. Nú erum við komin á þátt fjögur af sex, og verð ég að viðurkenna að ég er síst betri í þýsku. Þótt mér sé farið að skiljast að Magnús Hanson drap Sigurð og að hann er vondur kall.

Hún hefur tilkynnt mér það, af þýskum aga, að næsta kennslustund verði næsta laugardag og að þá munum við horfa á þætti fimm og sex. Ég veit nú ekki hvort hún mun halda stöðupróf í framhaldinu, en mig grunar að ég myndi falla á þess konar prófi.

Ég og æskuvinur minn horfðum á íslensku útgáfuna af þáttunum í "gamla daga" og hermdum við eina setningu sérstaklega úr þáttunum. Hana mælti fyllibyttan Sverrir á afar nefmæltan og skondin hátt. En hún hljóðaði svo "Maagnúúús Haaanson draap Siggurð."

Meira af þýskum málefnum síðar.


Sponsar Björgólfur þetta?

Þetta er orðið gott hjá grínverktökunum á Spaugstofunni! Þessum afgömlu gaurum er guðvelkomið að fara að gera eitthvað annað, gætu farið að leysa þá leikara af sem leika gamalmenni í Þjóðleikhúsinu.

Ef að Spaugstofan væri gefin út á DVD fyrir jólin, hvað ætli myndu seljast margir diskar? Kannski 1000? GEISP. Ætli Björgúlfur sé að sponsa þessa hörmung? Þeir eru nú verktakar!


Ríkisgersemin -

Við erum skondin hér á þessari krapaeyju.

Við erum með iðnaðarráðherra sem ferðast til fjarlægra landa til að halda kokkteilboð með íslenskum viðskiptamönnum í orkuútrás. Helsta hugðarefni er hans að hugvit sem bundið er við heilabú einstaklinga sem starfa hjá Orkuveitur Reykjavíkurbúa og Landsvirkjum ríkisþegna verði að einskonar Ríkisgersemi. Það er engu til sparað að boða boðskap hins nýja guðs - jarðvarmaguðs, og nú skilst mér að þessa nýju þjóðtrú eigi að boða innan Evrópusambandsins. Hugvit sem bundið er í HEILUM örfárra manna - á að verða ríkisgersemi. Þetta er fyndið.

Meðan íslenska þjóðin framleiðir ekki nægar vörur til að standa undir eigin innflutningi, gengur nýr jarðvarma-jesú berfættur á úthöfum Asíu og Afríku og boðar nýja trú sem ríkisstjórnin virðist hafa tekið. Tölur um viðskiptahallan eru svo ógnvekjandi að engir þorir lengur að minnast á hann. Þegar að svarið ætti að vera meiri framleiðsla þá fara Össur og Geir til Ítalíu að leika við stóru strákana. Þar fá þeir líka að hitta Geysir Green í kokteilboðum! Lesið bara heimasíðu Össurs.

Þegar að reykspúandi verksmiðja Alcoa verður komin í fulla framleiðslu eftir nokkra mánuði hafa vöruflutningar frá Íslandi aukist um 20% með einni verksmiðju, og það er langt frá því að stoppa upp í viðskiptahallann. Þarf þá ekki að auka framleiðslu meira? NEI! er svar jarðvarma-jesú, framleiðum rafmagn í Eþíópíu og skildum löndum segir hann! "Við erum að tala um fjárfestingar fyrir 2000 milljarða" sagði hann um daginn og fékk ósjálfráða fullnægingu án þess að skammast fyrir framan sjónvarpsmann ársins - sem by the way góndi á hann án gagnrýni og virtist einfaldlega fá það með honum. Þetta er fyndið.

Ef að ráðherrann, hann jarðvarma-jesú, gæfi einn þriðja af þeirri orku sem hann gefur í trúboð í fjarlægum löndum í að efla íslenskan iðnað og fjárfestingar í honum þá væri hann að gera þjóðinni til góðs. Meðan hann gengur erinda Geysis Green og íbúa fjarlægra landa, þá er hann ekki iðnaðarráðherrann minn - heldur jarðvarma-jesú sem boðar framandi trú. Ég er ekki alveg að fá það með honum í þessum málum. Þetta er fyndið.

Svo ætlar að hann að treysta því að hin stórfenglega útrás sem hugmyndafræðilega byggir á þekkingu sem nokkrir íslenskir skólastrákar geyma í kollinum, sé heila málið. Shit! Ætlar hann að taka veð í heilabúum íslenskra vísindamanna?Hvernig verður þetta? Leyfum Sir Smárason, Mr. Bónus og öðrum eigendum smáþotna að taka þennan séns á eigin ábyrgð, leyfum þeim líka að ráða þessa vísindamenn okkar í vinnu - þá getum við snúið okkur að því að byggja upp okkar eigið land!! Hvernig í fjáranum getur það orðið hlutverk ríkis og bæja að byggja orkuverksmiðjur í Asíu og Afríku, ég er bara ekki að fatta þetta! Þetta er fyndið.

Það væri hægt að gera út nýjan sendiherra, bara einhvern kút úr Samfylkingunni eða Sjálfstæðiflokknum sem á bindi og hvíta skyrtu. Það væri hægt að kalla hann "the Icelandic minester of power". Sir Smarason gæti borgað kaupið hans og Geir Hilmar gæti skrifað undir ráðherrabréf fyrir hann. Svo gætu þeir ferðast saman í þotunni hans Hannesar - og svo gæti Sir Smarason sagt á mikilvægum augnablikum "this is the Icelandic minister of power, he likes steam power". Þá gæti hinn raunverulegi iðnaðarráðherra verið heima á Íslandi og unnið að þeim málum sem hann á að vinna að - og gæti tildæmis haft tíma til að heimsækja fjarlægar þjóðir eins og Vestfirðinga, Austfirðinga  og Norðlendinga.

Bara að pæla.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Einar Ben Þorsteinsson
Einar Ben Þorsteinsson
talar frá Egilsstöðum

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 8561

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband